Upplýsingar á vef ESB

 

Landskrifstofur Menntaáætlunar ESB

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

hnappur_nsn.jpg
Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins
FRÉTTIR

GEM, sem stendur fyrir Geo-Information Science and Earth Observation for Environmental Modelling and Management, er sameiginleg meistaragráða fimm háskóla í Evrópu sem nýlega var styrkt af Erasmus Mundus áætluninni.

Landskrifstofu hefur borist erindi frá Famkvæmdastjórn Evrópusambandins þar sem auglýstur er opinn umræðufundur á Netinu þann 17. september. Umræðuefni fundarins er "Youth on the Move" átakið sem felst í því að hvetja ungt fólk í Evrópu til að taka huta af sínum námi í öðru Evrópulandi, með það að markmiði að auka færni þeirra og samkeppnisstöðu á vinnumarkaði. Öllum áhugasömum er boðið til þátttöku í fundinum.


Tilkynnt hefur verið um styrki úr Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlun ESB fyrir árið 2010. Úthlutunarnefnd ákvað að undangengnu mati sérfræðinga að styrkja þrjú verkefni en að þessu sinni bárust átta umsóknir. Heildarkostnaður vegna verkefnanna nemur um 114 milljónum króna en þar af styrkir Leonardó áætlunin 86 milljónir.

Seinni umsóknarfrestur um námsheimsóknir rennur út þann 15. október 2010.

Umsóknarfrestir um námsheimsóknir á skólaárinu 2010 - 2011 eru tveir. Fyrri umsóknarfrestur var 31. mars 2010 og sá seinni 15. október fyrir tímabilið mars til júní 2011.

Nú hefur verið auglýst eftir umsóknum vegna seinna tímabils 2010 - 2011 og rennur umsóknarfrestur út þann 15. október 2010.

Nálgast má kynningarbækling með nánari upplýsingum um námsheimsóknirnar hér: Umsóknir skal prenta út og senda til Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB, umsjón: Ásta Sif Erlingsdóttir.


Landskrifstofur um alla Evrópu standa fyrir tengslaráðstefnum á næstu mánuðum með það að markmiði að leiða saman fyrirtæki og stofnanir sem eru að reyna að ná til sömu markhópa og vilja ná fram sambærilegum árangri á tilteknu sviði. Þátttaka í tengslaráðstefnu er góð leið til að komast í samband við evrópska samstarfsaðila og til að þróa áfram hugmynd að verkefni  með það að markmiði að undirbúa umsókn um Leonardo styrk sem kemur til úthlutunar árið 2011.

Okkur langar að frétta af því hvor þátttaka í Leonardo, Comeniusar eða Grundtvig verkefni ásamt dvöl eða heimsókn til Evrópu hafi skipti máli í lífi og starfi þátttakenda.

Hugmyndin er að safna saman reynslusögum þeirra sem tekið hafa þátt í mannaskiptaverkefnum Leonardo.  Ekki þarf að svara í löngu máli. 5-10 línur geta komið miklu til skila.

Veittar verða viðurkenningar og verðlaun (iPod)  fyrir þrjár bestu og áhrifaríkustu frásagnirnar.


Eldri fréttir