Umsóknarfrestir:
Mannaskipti 5. febrúar
Samstarfsverkefni 19. febrúar
Yfirfærsluverkefni 26. febrúar


Upplýsingar á vef ESB
 

 

hnappur_nsn.jpg

 

 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

Leonardo - starfsmenntun

Öll verkefni sem Leonardo áætlunin styður þurfa að falla að einu eða fleiri þessara markmiða:

  1. Að styðja einstaklinga til þátttöku í sí- og endurmenntun sem miðar að því að auka kunnáttu og færni og efla persónulega hæfni þeirra
  2. Að efla gæði og styðja við nýsköpun í starfsmenntun innan fræðslu- og menntastofnana og í vinnustaðanámi
  3. Að auka aðdráttarafl starfsmenntunar og starfsþjálfunar meðal atvinnurekenda og einstaklinga og greiða fyrir hreyfanleika nemenda í starfsþjálfun
     

Fréttir og tilkynningar

Landskrifstofa Menntaáætlunar Evrópusambandsins  hefur nú úthlutað því fjármagni sem til ráðstöfunar er árið 2010 á grundvelli umsókna sem bárust 5. febrúar síðastliðinn. Alls bárust 34 umsóknir þar sem sótt var um 942 þúsund evrur. Styrkupphæðinni, 433 þúsund evrum eða um 68 m.kr., var úthlutað  til 21 skóla, fyrirtækja og stofnana fyrir samtals 199 einstaklinga. 

Núna var í fyrsta sinn hægt að sækja um vottun mannaskiptaverkefna sem felur í sér vilyrði fyrir styrkveitingu næstu 4 árin.  Myndlistaskólinn í Reykjavík er fyrsti aðilinn til að hljóta slíka vottun sem veitt er á grundvelli mjög góðra verkefna og vandaðrar framkvæmdar.  Námsferðir til Evrópu hafa á undanförnum árum verið hluti af námi í Mótun og nemendur skólans hafa fengið þátttöku sína í slíkum verkefnum að fullu metna sem hluta af náminu.  Núna er reiknað með að evrópskt samstarf verði hluti af náminu í þremur deildum skólans, í Mótun-leir og tengd efni, Teikningu og Textíl.

Okkur langar að frétta af því hvor þátttaka í Leonardo verkefni og dvöl eða heimsókn til Evrópu skipti máli í lífi og starfi þátttakenda.

Erlendir sérfræðingar voru aðalræðumenn á ráðstefnu verkefnisins New Skills Network sem haldin var hér á landi á dögunum.

Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB ásamt Mennta- og menningarmálaráðuneytinu stendur fyrir lokuðu alþjóðlegu málþingi varðandi stefnumörkun Evrópusambandis um færni til framtíðar (New Skills for New Jobs Agenda). Málþingið ber heitið „Facilitating cooperation between different stakeholders on future skills upgrading and skills matching for jobs“ og er haldið í Reykjavík þann 31. maí til 1. júní n.k. Fimmtán sérfræðingum frá jafn mörgum löndum var boðið til þess að taka þátt í málþinginu ásamt samstarfsaðilum verkefnisins „New Skills Network“ sem Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB stýrir.


Gæðakerfi í  starfsmenntun er þema  tengslaráðstefnu sem haldin verður í  Finnlandi 8. – 10. júní.  Yfirskrift ráðstefnunnar er  Tools for Quality Assurance in Vocational Education and Training og er um að ræða samstarfverkefni Landskrifstofa Leonardo hluta Menntaáætlunar ESB á Norðurlöndunum og Írlandi.  Til ráðstefnunnar er boðið fulltrúum allra þátttökulanda Menntaáætlunar Evrópusambandsins og er markmiðið að mynda tengsl fyrir Leonardo yfirfærslu-, samstarfs- og mannaskiptaverkefni.

Í framhaldi af tengslaráðstefnunni 10.- 11. júní verður haldið námskeið fyrir verkefnastjóra yfirfærsluverkefna, Training programme for peers