Um Þróunarsjóð EFTA
Sjóðurinn var settur á laggirnar árið 2004 í þeim tilgangi að jafna félagslegan og efnahagslegan mun í Evrópulöndunum og auka samvinnu milli þeirra. Gildistími sjóðsins er milli 2004 og 2009, og munu EFTA löndin þrjú, Ísland, Noregur og Liechtenstein, veita 672 milljónum € í hann á tímabilinu. Auk þess veita Norðmenn viðbótarfé upp á 567 milljónir €. Einkennisorð sjóðsins eru samstaða, tækifæri og samvinna.
Hverjir geta sótt um?
Stofnanir sem starfa í þágu almennings (t.d. yfirvöld, samtök og mennta- og rannsóknarstofnanir) í eftirfarandi löndum: Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Póllandi, Tékklandi, Slóvakíu, Ungverjalandi, Slóveníu, Kýpur, Möltu, Spáni, Portúgal, Grikklandi, Búlgaríu og Rúmeníu. Einnig eru fyrir hendi möguleikar á styrkjum til einstaklinga í nokkrum löndum.
Hvaða möguleika hafa íslenskar menntastofnanir?
Menntastofnanir á Íslandi og hinum EFTA löndunum fá ekki styrki beint úr sjóðnum. Ef þær eru í samstarfi við stofnanir sem geta sótt um, hafa þær hins vegar færi á því að fá hlut af þeirra styrk. Við viljum benda íslenskum menntastofnunum á að nýta sér þennan möguleika, þar sem þarna geta verið umtalsverðar fjárhæðir í boði.
Hvað er hægt að sækja um?
Í raun er um tvær leiðir að velja – umsókn um stakt verkefni eða umsókn í sjóði. Þar sem útdeilt hefur verið öllum styrkjum um stök verkefni er nú aðeins um umsókn í sjóði að velja. Mismunandi sjóðir eru í hverju landi fyrir sig og því nauðsynlegt að kynna sér hvað er í boði á hverjum stað. Í undantekningartilfellum bjóða sjóðir upp á styrki til einstaklinga í EFTA-löndunum. Upplýsingar um styrki til einstaklinga.
Yfirlit yfir þá sjóði þar sem umsóknarfrestur var enn opinn í desember 2008.
Nánari upplýsingar
Ítarlegustu upplýsingar um Þróunarsjóð EFTA er að finna á heimasíðu sjóðsins. Þar er meðal annars hægt að lesa sér til um þau lönd sem sækja mega um í sjóðinn og um þau verkefni sem hlotið hafa styrk úr sjóðnum).
Upplýsingar um möguleika fyrir íslenskar menntastofnanir að taka þátt í verkefnum á vegum sjóðsins gefur Rúna Vigdís Guðmarsdóttir hjá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins í síma 525 4586 eða ruv(hjá)hi.is.
Listi yfir tengiliði í löndum sem mega sækja um





