Umsóknarfrestir Leonardo 2012

Yfirfærsluverkefni 2. febrúar
Mannaskipti 3. febrúar
Samstarfsverkefni 21. febrúar


 

Leonardo bæklingur


Gengistafla 

Til að fá upplýsingar um gengi á evru vs. ÍSK smelltu hér


 




hnappur_nsn.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

 

Evrópusamvinna heimasíða

EVE_logo

 


 


Upplýsingar á vef EACEA 

Undirbúningsstyrkir eru veittir til ferða sem farnar eru til að undirbúa Leonardo verkefni, til dæmis með þátttöku í tengslaráðstefnum eða til að hitta samstarfsaðila á öðrum vettvangi. Það er afar mikilvægt fyrir aðila sem eru að undirbúa verkefni að hitta samstarfsaðila fyrirfram og það stuðlar að auknum gæðum umsókna og verkefna.

Þeir sem hafa áhuga á að undirbúa verkefni og verkefnaumsóknir geta sótt um undirbúningsstyrkir (preparatory visits grants) til Landskrifstofu menntaáætlunar ESB. Þeir sem hyggjast sækja tengslaráðstefnur geta sótt um undirbúningsstyrk sem og þeir sem eru að fara að hitta væntanlega samstarfsaðila. Takmarkað fjármagn er til ráðstöfunar til þessa verkefnis en reiknað er með að umsóknir séu afgreiddar  á meðan fjármagn endist.  Umsóknir skulu berast amk fjórum vikum fyrir áætlaða brottför.

Hámarksstyrkur er 1500 € og geta styrkirnir verið nýttir til að greiða ferðir, uppihald og ráðstefnugjöld. Þegar um er að ræða þátttöku á tengslaráðstefnum eru greidd ráðstefnugjöld en þegar sóttir eru fundir er greiddur uppihaldsstyrkur þar sem miðað við fjölda ferðadaga. Uppihaldsstyrkur er mishár eftir löndum og er listi yfir hámarksstyrkupphæðir hér neðst á síðunni. Ferðastyrkur er greiddur samkvæmt reikningi en athugið að hámarksstyrkur er 1500 €.

Dvalarlengd er að hámarki 5 dagar.

Eftir að heimsókninni lýkur þurfa styrkþegar að skila lokaskýrslu sem og reikningum fyrir ferðakostnaði og brottfararspjöldum.

Þegar sótt er um undirbúningsstyrk þarf að fylla út rafrænt umsóknareyðublað.
 

Listi yfir hámarksgreiðslur á dag vegna uppihalds (subsistence)

 

Land sem farið er til Uppihald (án ferða) 
1 dagur
AT - Austurríki 190 €
BE - Belgía 170 €
BG - Búlgaría 120 €
CH - Sviss 220 €
CY - Kýpur 150 €
CZ - Tékkland 170 €
DE - Þýskaland 170 €
DK- Danmörk 240 €
EE - Eistland 150 €
ES - Spánn 180 €
FI - Finnland 210 €
FR - Frakkland 200 €
GB/UK- Bretland 220 €
GR - Grikkland 170 €
HR - Króatía 160 €
HU - Ungverjaland 160 €
IE - Írland 210 €
IS - Ísland  
IT - Ítalía 190 €
LI - Liechtenstein 220 €
LT - Litháen 130 €
LU - Luxemborg 170 €
LV - Lettland 150 €
MK - Makedónía 0 €
MT - Malta 150 €
NL - Holland 190 €
NO - Noregur 250 €
PL - Pólland 160 €
PT - Portúgal 160 €
RO - Rúmenía 130 €
SE - Svíþjóð 200 €
SI - Slóvenía 160 €
SK - Slóvakía 150 €
TR - Tyrkland 140 €