Umsóknarfrestir Leonardo 2012

Yfirfærsluverkefni 2. febrúar
Mannaskipti 3. febrúar
Samstarfsverkefni 21. febrúar


 

Leonardo bæklingur


Gengistafla 

Til að fá upplýsingar um gengi á evru vs. ÍSK smelltu hér


 




hnappur_nsn.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

 

Evrópusamvinna heimasíða

EVE_logo

 


 


Upplýsingar á vef EACEA 

 

LEIÐBEININGAR VEGNA VERKEFNA ÁRSINS 2008
SAMNINGAR MILLI LANDSKRIFSTOFU OG VERKEFNISSTJÓRA:

Fyrir gerð samnings milli Landskrifstofu og verkefnisstjóra fyrir 2008 mannaskiptaverkefni þurfa verkefnisstjórar að skila inn frumriti af samstarfsyfirlýsingu "letters of intent" frá samstarfsaðilum.  Einnig þarf að setja inn í Leopass kerfið upplýsingar um endurskoðaðaðar fjárhags- og ferðaáætlanir sem og upphafs- og lokadagsetningu samningsins.  Vinsamlegast smellið hér til að sækja leiðbeiningar.

Almennur kafli um skilyrði samninga (General conditions) fylgir með öllum samningum en þennan hluta samningsins er hægt að skoða með því að smella hér.

UNDIRBÚNINGUR VERKEFNA:

Leiðbeiningar um fjármál og verkefnastjórnun er stuttur leiðbeiningabæklingur sem nauðsynlegt er fyrir verkefnisstjóra að kynna sér vel.

Góður undirbúningur verkefna er mjög mikilvægur.  Áður en styrkþegar leggja af stað í ferð þurfa þeir aðilar sem að verkefninu koma að undirbúa framkvæmd verkefnisins vandlega.  Samningar milli sendanda, móttakenda og styrkþega eru hluti af þessari vinnu og vert að leggja áherslu á að þessir samningar séu gerðir áður en lagt er af stað í ferð.  Ef vandað er til gerðar þessara samninga eru þeir góður stuðningur í undirbúningsferlinu.

Samningseyðublöð fyrir mannaskiptaverkefni (IVT og PLM) - 2008 verkefni:
Samningur mannaskiptaverkefna er tvíþættur, þ.e annarsvegar er um að ræða samning sendanda og þátttakanda (Contract for a Leonardo da Vinci training placement) en til viðbótar þeim samningi og sem viðhengi er samkomulag um þjálfunina (training agreement) og gæðaviðmið (quality commitment)

Vinsamlegast smellið hér til að sækja samning sem gerður er  milli sendanda og þátttakenda og  kallast "Contract for a Leonardo da Vinci training placement". Athugið að undir þennan samning skrifar sendandi og þátttakandi.

Vinsamlegast smellið hér til að sækja samkomulag um þjálfun milli sendanda, móttökustofnunar og þátttakakanda  "Training agreement.  Athugið að undir þennan hluta samningsins skrifa allir þrír aðilar verkefnisins, þ.e. sendandi, móttakandi og þátttakandi. 

Samningseyðublöð fyrir starfsmannaskipta verkefni (VETPRO) - 2008 verkefni:
Samningur starfsmannaskipta verkefnanna er tvíþættur, þ.e annarsvegar er um að ræða samning sendanda og þátttakanda (Contract for a Leonardo da Vinci mobility - VETPRO) en til viðbótar þeim samningi og sem viðhengi er dagskrá (workprogramme VETPRO) og gæðaviðmið (quality commitment).

Vinsamlegast smellið hér til að sækja samning sem gerður er  milli sendanda og þátttakenda og  kallast "Contract for a Leonardo da Vinci mobility - VETPRO".  Athugið að undir þennan samning skrifa sendandi og þátttakandi.

Vinsamlegast smellið hér til að sækja form fyrir dagskrá verkefnisins (workprogramme VETPRO).  Athugið að undir þennan hluta samningsins skrifa allir þrír aðilar verkefnisins, þ.e. sendandi, móttakandi og þátttakandi.  Gæðaviðmið eru fylgigagn með dagskránni, vinsamlegast smellið hér til að sækja gæðaviðmiðin

 

SKÝRSLUEYÐUBLÖÐ VERKEFNA ÁRSINS 2008

Verkefnisstjóri ber ábyrgð á skýrsluskilum vegna sinna verkefna.  Umsýslukerfi Leonardó mannaskiptaverkefna heitir Leopass og er að finna leiðbeiningar um það í kaflanum um Leopass sem er að finna hér á síðunni.  Úr Leopass kerfinu eru keyrðar út fjárhagsupplýsingar verkefnanna sem síðan eru hluti þeirra skýrslna sem verkefnisstjórar skila til Landsskrifstofu.

Milliskýrslur:  Fyrir verkefni sem eru meira en 18 mánuðir skal  verkefnisstjórinn að skila milliskýrslu.  Eftir að milliskýrslu er skilað er hægt að óska eftir 30% viðbótargreiðslu ef búið er að nota meira en 70% af styrkupphæðinni.  Milliskýrslu skal skilað ári eftir að verkefnin hefjast.  Fjárhagshluti milliskýrslu er gerður í Leopass.

Lokaskýrslu verkefnanna skal skila í síðasta lagi mánuði eftir að gildistíma verkefnisins líkur.  Lokagreiðsla er ekki gerð fyrr en lokaskýrslu hefur verið skilað og hún samþykkt af Landskrifstofu.

Lokaskýrsla samstendur af 4 þáttum:
a) Efnislegum hluta  þar sem skýrt er frá framkvæmd verkefnisins, helstu niðurstöðum o.fl.  (Athugið að kafli IVParticipant data og kafli V Financial tables er keyrt út úr Leopass kerfinu)

b) Fjárhagshluti lokaskýrslunnar er gerður og keyrður út úr Leopass kerfinu.   Athugið að fjárhagshlutanum þurfa að fylgja gögn sem sýna fram á útlagðan kostnað vegna ferða, trygginga og undirbúningsnámskeiða.  Vegna ferða þurfa einnig að fylgja afrit af flugmiðum og brottfararspjöld.  Þeir sem ekki hafa haldið til haga brottfararspjöldum þurfa að láta fylgja undirritaða yfirlýsingu styrkþega um að þeir hafi farið umrædda ferð og umrætt flug.  

c)   Nauðsynleg fylgigögn með lokaskýrslu eru afrit af undirrituðum samningi milli sendanda og  þáttakanda sem og afrit af undirriaðri dagská eða þjálfunarprógrammi - sjá samningsformin hér fyrir ofan í kafla um undirbúning verkefna. Þessir samningar eru gerðir fyrir alla styrkþega.

d) Einstaklingsskýrslur styrkþega eru einnig nauðsynleg fylgigögn með lokaskýrslu.  Styrkþegarnir gera sínar skýrslur í Leopass kerfinu eftir að verkefnisstjórar hafa sent þeim lykilorð að kerfinu en einnig skulu styrkþegar prenta út skýrslurnar og undirrita. Nánari upplýsingar er að finna í umfjöllun um leopass kerfið.

Skýrslukóðar
Við gerð þeirra skýrslna sem hér um ræðir eru notaðir ýmsar skammstafanir og kóðar.  Vinsamlegast smellið hér til að sækja skjal yfir alla þá kóða sem notaðir eru.