Samningar milli Landskrifstofu og verkefnisstjóra
Fyrir gerð samnings milli Landskrifstofu og verkefnisstjóra fyrir 2009 mannaskiptaverkefni þurfa verkefnisstjórar að skila inn frumriti af samstarfsyfirlýsingu "letters of intent" frá samstarfsaðilum. Einnig þarf að setja inn í Leopass kerfið upplýsingar um endurskoðaðaðar fjárhags- og ferðaáætlanir sem og upphafs- og lokadagsetningu samningsins.
Undirbúningur verkefna
Góður undirbúningur verkefna er mjög mikilvægur. Leiðbeiningar um fjármál og verkefnastjórnun er stuttur leiðbeiningabæklingur sem nauðsynlegt er fyrir verkefnisstjóra að kynna sér vel.
Áður en styrkþegar leggja af stað í ferð þurfa þeir aðilar semað verkefninu koma að undirbúa framkvæmd verkefnisins vandlega. Samningar milli sendanda, móttakenda og styrkþega eru hluti af þessari vinnu og vert að leggja áherslu á að þessir samningar séu gerðir áður en lagt er af stað í ferð. Ef vandað er til gerðar þessara samninga eru þeir góður stuðningur í undirbúningsferlinu.
Samningseyðublöð fyrir mannaskiptaverkefni (IVT og PLM) - 2009 verkefni
Samningur mannaskiptaverkefna er tvíþættur:
Annarsvegar er um að ræða samning sendanda og þátttakanda (Contract for a Leonardo da Vinci training placement) Athugið að undir þennan samning skrifar sendandi og þátttakandi.
Til viðbótar þeim samningi og sem viðhengi er samkomulag um þjálfunina (training agreement) og gæðaviðmið (quality commitment). Athugið að undir þennan hluta samningsins skrifa allir þrír aðilar verkefnisins, þ.e. sendandi, móttakandi og þátttakandi. Gæðaviðmiðin eru áhersluatriði sem verkefnastjórum ber að reyna að uppfylla við framkvæmd verkefnisins.
Samningseyðublöð fyrir starfsmannaskiptaverkefni (VETPRO) - 2009 verkefni
Samningur starfsmannaskipta verkefnanna er tvíþættur:
Annarsvegar er um að ræða samning sendanda og þátttakanda (Contract for a Leonardo da Vinci mobility - VETPRO) Athugið að undir þennan samning skrifa sendandi og þátttakandi.
Til viðbótar þeim samningi og sem viðhengi er dagskrá (workprogramme VETPRO) Athugið að undir þennan hluta samningsins skrifa allir þrír aðilar verkefnisins, þ.e. sendandi, móttakandi og þátttakandi.
Gæðaviðmið eru fylgigagn með dagskránni og áhersluatriði sem verkefnisstjóra ber reyna að uppfylla við framkvæmd verkefnisins.
Skýrslueyðublöð verkefna ársins 2009
Verkefnisstjóri ber ábyrgð á skýrsluskilum vegna sinna verkefna. Umsýslukerfi Leonardó mannaskiptaverkefna heitir Leopass og er að finna leiðbeiningar um það í kaflanum um Leopass sem er að finna hér á síðunni. Úr Leopass kerfinu eru keyrðar út fjárhagsupplýsingar verkefnanna sem síðan eru hluti þeirra skýrslna sem verkefnisstjórar skila til Landsskrifstofu.
Milliskýrslur: Fyrir verkefni sem eru meira en 18 mánuðir skal verkefnisstjórinn að skila milliskýrslu. Eftir að milliskýrslu er skilað er hægt að óska eftir 30% viðbótargreiðslu ef búið er að nota meira en 70% af styrkupphæðinni. Milliskýrslu skal skilað ári eftir að verkefnin hefjast. Fjárhagshluti milliskýrslu er gerður í Leopass. Vinsamlegast smellið hér til að sækja efnislegan hluta milliskýrslu (word skjal)
Lokaskýrslu verkefnanna skal skila í síðasta lagi mánuði eftir að gildistíma verkefnisins líkur. Lokagreiðsla er ekki gerð fyrr en lokaskýrslu hefur verið skilað og hún samþykkt af Landskrifstofu. Vinsamlegast smellið hér til að sækja efnislegan hluta lokaskýrslu. Athugið að þetta skjal er einnig hægt að nálgast inn í Leopass og er þá búið að fylla inn grunnupplýsingar verkefnisins.
Lokaskýrsla samanstendur af 4 þáttum:
-
Efnislegum hluta þar sem skýrt er frá framkvæmd verkefnisins, helstu niðurstöðum o.fl. (Athugið að kafli IV Participant data og kafli V Financial tables eru keyrðir út úr Leopass kerfinu)
-
Fjárhagshluti lokaskýrslunnar er gerður og keyrður út úr Leopass kerfinu.
Nauðsynleg fylgigögn:
Gögn sem staðfesta dvalartíma og þá reynslu sem þátttakandinn hefur öðlast. Um er að ræða:
EUROPASS starfsmenntavegabréf. Athugið að vanda vel gæði skjalsins, að dagssetningar séu réttar, skjalið undirritað og stimplað af þeim sem að skjalinu koma. Upplýsingar um Europass eru á www.europass.is. Þar eru einnig upplýsingar um það hvernig má nálgast númer fyrir Europass skjöl.
eða
STAÐFESTINGU á dvöl (certificate) þar sem fram kemur dvalartíminn og upplýsingar um dvölina. Athugið að staðfestingin þarf að vera undirrituð af forsvarsmanni móttökustofnunar.
BROTTFARARSPJÖLDUM(bording pass) eiga þátttakendur að halda til haga og skila til verkefnisstjóra.
-
Afrit af undirrituðum samningi milli sendanda og þáttakanda sem og afrit af undirritaðri dagská eða þjálfunarprógrammi - sjá samningsformin hér fyrir ofan í kafla um undirbúning verkefna. Þessir samningar eru gerðir fyrir alla styrkþega.
- Einstaklingsskýrslur styrkþega eru einnig nauðsynleg fylgigögn með lokaskýrslu. Styrkþegarnir gera sínar skýrslur í Leopass kerfinu eftir að verkefnisstjórar hafa sent þeim lykilorð að kerfinu en einnig skulu styrkþegar prenta út skýrslurnar og undirrita. Nánari upplýsingar er að finna í umfjöllun um leopass kerfið.
Skýrslukóðar
Skýrslukóðar
Við gerð þeirra skýrslna sem hér um ræðir eru notaðir ýmsar skammstafanir og kóðar. Vinsamlegast smellið hér til að sækja skjal yfir alla þá kóða sem notaðir eru.






