Upplýsingar á vef ESB 

 

Landskrifstofur Menntaáætlunar ESB

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

 

 


 

Flataskóli sigraði Schoolovision 2010 - söngvakeppni 34 skóla í Evrópu. Þetta er annað árið sem Flataskóli tekur þátt í þessu skemmtilega eTwinning-verkefni.

Ykkur stendur til boða að lýsa áhuga ykkar til 15. Maí 2010. Miðstöð eTwinning í Evrópu mun síðan velja úr kennara sem síðan skila inn sínu framlagi til bókarinnar. Fyrirfram þakkir fyrir stuðninginn – við hlökkum til að heyra í ykkur.

Þema: Loftlagsbreytingar og norðurheimskautið. Ætlað kennurum í samfélgasfræði og náttúrufræði á unglinga- og framhaldsskólastigi. Ferðastyrkur í boði fyrir 2 til 3 kennara. Umsóknarfrestur 12. maí 2010.

Þema: Loftlagsbreytingar og norðurheimskautið
Ætlað kennurum í samfélgasfræði og náttúrufræði (eðlisfræði, efnafræði, líffræði, samfélagsfræði, saga eða landafræði).
Skólastig: Unglingastigi (8. til 10. bekkur), og framhaldsskólastig.
Ferðastyrkur í boði fyrir 2 til 3 kennara
Vinnustofan fer fram á skandinavísku (dönsku, norsku og sænsku), og því gerð krafa um færni í einhverju þessara mála.

Skráningarfrestur 12. maí 2010.


Gæðakerfi í  starfsmenntun er þema  tengslaráðstefnu sem haldin verður í  Finnlandi 8. – 10. júní.  Yfirskrift ráðstefnunnar er  Tools for Quality Assurance in Vocational Education and Training og er um að ræða samstarfverkefni Landskrifstofa Leonardo hluta Menntaáætlunar ESB á Norðurlöndunum og Írlandi.  Til ráðstefnunnar er boðið fulltrúum allra þátttökulanda Menntaáætlunar Evrópusambandsins og er markmiðið að mynda tengsl fyrir Leonardo yfirfærslu-, samstarfs- og mannaskiptaverkefni.

Í framhaldi af tengslaráðstefnunni 10.- 11. júní verður haldið námskeið fyrir verkefnastjóra yfirfærsluverkefna, Training programme for peers
 

Framvegis tekur þátt í Leonardo-verkefni ásamt fimm öðrum Evrópulöndum. Verkefnið ber heitið Providence sem er stytting á Providing competences (to workforce). Verkefnið gengur út á kynnast starfsemi samstarfsaðilanna í verkefninu með það að markmiði að hver samstarfsaðili noti þá þekkingu til þess að efla og auka gæði í þeirri starfstengdu menntun sem þeir bjóða upp á í sínu heimalandi.

Þema: Fjölmenning og sú áskorun sem í henni felst fyrir skóla (Interculturalism appreciation and inclusion: Challenging schools).

Þema: Fjölmenning og sú áskorun sem í henni felst fyrir skóla (Interculturalism appreciation and inclusion: Challenging schools).

Fulltrúi Íslands í Schoolovision! tók ásamt samstarfsfólki á móti Evrópuverðlaunum eTwinning í sínum flokki.

Um er að ræða 3 - 5 daga námsheimsóknir, þar sem þátttakendum gefst kostur á að kynna sér menntun og starfsþjálfun í móttökulandinu út frá fyrir fram ákveðnum sjónarhóli.

Fyrir skólastjórnendur (head teachers) á fyrstu þremur skólastigunum. Ferðastyrkir og uppihald fyrir þrjá.

Fyrir leik, grunn- og framhaldsskóla og fullorðinsfræðslustofnanir hvers konar.

Menntaáætlun Evrópusambandsins styrkir menntun og þjálfun á öllum stigum, frá leikskóla til háskóla auk fullorðinsfræðslu. Umsóknarfrestir árið 2010 eru eftirfarandi:

Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 14. janúar 2010 kl. 15-18. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs.

Næsti umsóknarfrestur er 15 janúar 2010

Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 14. janúar 2010 kl. 15-18.

Námskeiðin verða haldin í Námu, sal Endurmenntunar HÍ, Dunhaga 7 en einnig verða þau send út með fjarfundabúnaði og aðgengileg á nokkrum símenntunarmiðstöðvum á landsbyggðinni.  Þátttakendur af landsbyggðinni geta nálgast gögn hér á bakvið.

Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 14. janúar 2010 kl. 15-18. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs.

Ákveðið hefur verið að umsóknafrestir um námsheimsóknir verði tveir á ári í framtíðinni. Fyrri umsóknarfrestur verður í mars fyrir heimsóknir sem boðið er upp á frá september til febrúar, og  seinni frestur verður í október fyrir heimsóknir sem boðið er upp á frá mars til loka júní.

Hægt er að sækja um styrk gegnum Comenius á Íslandi. Umsóknarfrestur 15. janúar 2010.

 Dönsk kennslumyndbönd um eTwinning - bæði desktop og TwinSpace

Í stað hefðbundins ársfundar mun Fræðslumiðstöð atvinnulífsins í samstarfi við Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB halda ráðstefnu undir heitinu „Úrræði til árangurs“ á Hótel Hilton Nordica dagana 26. og 27. nóvember. 
 

Háskóli Íslands tekur þátt í Erasmus Mundus verkefninu MULTIELE: „Multilingalism: Master’s degree in Learning and Teaching of Spanish in Multilingual and International Contexts“.

Landskrifstofa menntaáætlunar Evrópusambandsins opnaði nýjan vef klukkan fimm, fimmta nóvember 2009.

Út er komin skýrsla á vegum menntamála­ráðuneytisins um þróun menntastefnu á Íslandi í evrópsku samhengi. Skýrslan er aðgengileg bæði á íslensku og ensku.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur auglýst  eftir umsóknum um styrki til næstu þriggja ára í menntaáætlun Evrópusambandsins.

Dagana 27. – 30. september síðastliðinn var haldin tengslaráðstefna í Dublin á Írlandi. Fulltrúar frjálsra félaga, stofnana og skóla frá ýmsum löndum komu þar saman til að leita samstarfsaðila.

Verkefnið Schoolovision, sem Flataskóli tók þátt í, hreppti fyrsta sæti í flokki nemenda 15 ára og yngri í Global Junior Challenge.

Ferðastyrkur fyrir 2-3 kennara. Skráningarfrestur var til kl. 13:00 föstudaginn 18. september. Á vinnustofunni verður fjallað um hvernig nota má eTwinning og upplýsingatækni í kennslu.

Sigurganga verkefnisins „1, 2, Buckle my shoe“, sem Furugrund í Kópavogi tekur þátt í, heldur áfram. Verkefnið hefur unnið til fjölda verðlauna.

Mánudaginn 14. september verður haldin lokaráðstefna Social Return verkefnisins. Ráðstefnan hefst kl. 12.30 og verður haldin í Ketilshúsinu á Akureyri.

Ferðastyrkur fyrir 2-3 kennara. Skráningarfrestur er til kl. 13:00 föstudaginn 18. september. Tungumál, félagsvísindi og stærðfræði og vísindi.

Á þriðja tug tungumála- og félagsgreinakennara allstaðar að af norðurlöndunum hafa fræðst um eTwinning, notkun stuttmynda í kennslu, og síðast en ekki síst, hafa skrifað handrit, tekið upp, og klippt eigin stuttmyndir.

Framkvæmdarstjórn ESB hefur gefið út skýrslu (Green Paper)sem ætlað er að hvetja til umræðu um það hvernig hægt sé að hvetja ungt fólk að taka hluta af námi sínu erlendis.

Framkvæmdarstjórn ESB hefur gefið út skýrslu (Green Paper) sem ætlað er að hvetja til umræðu um það hvernig hægt sé að hvetja ungt fólk að taka hluta af námi sínu erlendis.

CEDEFOP, Starfsmenntastofnun Evrópu, hefur gefið út bækling með úrvali dæma um það sem gert er í starfsmenntamálum í Evrópu.

Íslenska, norska og danska landskrifstofan í samvinnu við baltnesku löndin og Norðurlönd standa fyrir tengslaráðstefnu mannaskipta- og samstarfsverkefna Leonardó þann 22. – 24. október í Reykjavík.

Schoolovision 2009! gim | 26.06.2009

Schoolovision 2009!, sem Flataskóli tekur þátt í, verkefni mánaðarins í fréttabréfi eTwinning í Evrópu - framlag Íslands náði 4. sæti!

Árlega eru veittir styrkir til mannaskiptaverkefna Leonardó starfsmenntaáætlunarinnar, þar sem fólki í starfsnámi, ungu fólki á atvinnumarkaði og leiðeinendum og/eða stjórnendum gefst kostur á að afla sér starfsþjálfunar innan síns fagsviðs í öðrum Evrópulöndum.

Fyrir skemmstu stóð landskrifstofan fyrir byrjendanámskeiði í eTwinning fyrir leikskólakennara þar sem farið var í grundvallaratriði eTwinning.