Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

Study_in_Europe_logo
Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

 

 

 

 

Samstarf evrópskra háskóla við háskóla utan Evrópu

Áætlunin hét áður „External Cooperation Window“. Áætlunin snýst um styrki til stúdenta og fræðimanna. Megin áherslan er á styrki til stúdenta og fræðimanna utan Evrópu til að koma þangað. Vinsamlegast athugið að íslenskar stofnanir geta ekki tekið þátt í Aðgerð 2.
 

Skilyrði

Verkefni í  „Aðgerð 2“ þurfa ekki að tengjast sameiginlegu Erasmus Mundus námi (Aðgerð 1). Skólar sem sækja um í „Aðgerð 2“ þurfa ekki að bjóða upp samþykkt Erasmus Mundus nám.

Samstarfsnetið þarf að samanstanda af minnst 5 Evrópskum háskólum frá minnst 3 löndum og nokkrum háskólum utan Evrópu (breytilegt eftir heimshlutum).
 

Fjármögnun

Öfugt við Aðgerðir 1 & 3 þá er þessi hluti ekki fjármagnaður af „mentamálaráðuneyti“ (DG Education and Culture) Evrópusambandsins heldur nokkrum mismunandi stofnunum eins og; „European Neigbourhood and Partnership Instrument“, „the European Development Fund“ og „Industrialised Countries Instrument“. Þar sem stefnumál og markmið þessara stofnana eru ólík þá geta orðið talsverðar breytingar á framkvæmd „Aðgerðar 2“ á milli ára.

Nálgunin við úthlutun styrkja er að veita frekar færri styrki til stórra verkefna frekar en að dreifa minni styrkjum á mörg verkefni. Styrkir eru að jafnaði ekki undir 1 milljón Evra.
 

Upplýsingar

Nánari upplýsingar er að finna á vef „Executive Agency“ sem sér um framkvæmd áætlunarinnar fyrir hönd framkvæmdastjórnar ESB.

Á vef „Executive Agency“ eru birt „Call for Proposals“ með vísunum í viðeigandi upplýsingar. Þar er líka hægt að skoða lista yfir verkefni sem hlutu styrki árin 2007 og 2008 (pdf-skjal)