Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

Study_in_Europe_logo
Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

 

 

 

 

Markmið og lýsing verkefnis

Háskólanám í Evrópu þarfnast umbóta til að geta tekið af meiri krafti þátt í uppbyggingu á Evrópska þekkingarsamfélaginu (Europe of Knowledge) og stuðlað þannig að því að Lisbon markmiðin varðandi vöxt og vinnu náist. Aðlaga þarf fyrirkomulag kennslu, viðurkenningu á námi og gæðaeftirlit að markmiðum Bologna ferlisins. Huga þarf að fjármögnun evrópskra háskóla svo þeir geti staðist aukna samkeppni samhliða aukinni hnattvæðingu. Evrópskir háskólar þurfa einnig í auknu mæli að huga að menntun og endurmenntun fólks á vinnumarkaði.

Erasmus áætlunin hvetur til umbóta í háskólaumhverfinu með því að veita styrki til slíkra samstarfsverkefna. Þáttakendur verða að vera frá minnst þremur löndum.
 

Verkefni sem fela í sér eftirtalin atriði njóta forgangs:

  • Umbætur varðandi kennslu, mat á námi og gæðaeftirlit.
  • Umbætur í stjórnsýslu og fjármögnun háskóla
  • Stefnumótun varðandi símenntun og endurmenntun og meiri tengsl við verkmenntun með það að markmiði að háskólar nái að þjóna sínu samfélagi sem öflugar og „opnar“ miðstöðvar menntunar
  • Áhersla á gæði og fagmennsku í starfi háskóla til að efla traust á þeim.
  • Bæta aðgengi fólks með óformlega menntun að háskólanámi.
  • Kynningarstarf til að efla áhuga almennings á háskólum, starfi þeirra og námsmöguleikum.

Dæmi um verkefni og nánari upplýsingar er að finna á vef framvkæmdastjórnar ESB
 

Umsjón

Framkvæmdastjórn ESB hefur falið framkvæmdaskrifstofu ESB um mennta- og menningarmál (Education, Audiovisual and Culture Executive Agency, EACEA) umsjón með öllum miðstýrðum þáttum.  Öll formleg umsjón (umsóknir, mat umsókna, samningsgerð) er á höndum þessarar skrifstofu.

Öll umsóknareyðublöð og önnur fylgigögn á að vera hægt að nálgast á vefsíðu EACEA.

Hlutverk Landskrifstofu er að miðla upplýsingum um áætlunina og aðstoða umsækjendur eins og kostur er.