Markmið og lýsing verkefnis
Skipulagt samstarf háskóla og atvinnulífsins getur haft margþætt jákvæð áhrif á báða bóga, t.d. með;
- gagnkvæmri miðlun á þekkingu
- starfsþjálfun fyrir stúdenta
- rannsóknarsamstarfi
- endurmenntun starfsmanna
- auknum starfsmöguleikum útskrifaðra stúdenta
- o.fl. o.fl.
Erasmus áætlunin hvetur til samstarfs háskóla og atvinnulífs (bæði við einka- og opinbera geira) með því að veita styrki til slíkra samstarfsverkefna. Þáttakendur verða að vera frá minnst þremur löndum.
Verkefni sem fela í sér eftirtalin atriði njóta forgangs:
- Virka þátttöku samstarfsaðila utan háskólageirans, t.d; lítil og meðastór fyrirtæki, fagfélög, félagasamtök, opinberar stofnanir og sveitarfélög.
- Aukin tengsl náms og atvinnulífs
- Námsmöguleika fyrir fólk í atvinnulífinu. Til dæmis; endurmenntun, náms samhliða starfi og verknám og háskólastigi.
- Þróun á aðferðum til að efla tengsl og samstarf háskóla og atvinnulífs.
- Frumkvöðlastarf.
Dæmi um verkefni á nánari upplýsingar er að finna á vef framkvæmdastjórnar ESB
Umsjón
Framkvæmdastjórn ESB hefur falið framkvæmdaskrifstofu ESB um mennta- og menningarmál (Education, Audiovisual and Culture Executive Agency, EACEA) umsjón með öllum miðstýrðum þáttum. Öll formleg umsjón (umsóknir, mat umsókna, samningsgerð) er á höndum þessarar skrifstofu.
Öll umsóknareyðublöð og önnur fylgigögn á að vera hægt að nálgast á vefsíðu EACEA.
Hlutverk Landskrifstofu er að miðla upplýsingum um áætlunina og aðstoða umsækjendur eins og kostur er.


