Umsóknarfrestir Leonardo 2012

Yfirfærsluverkefni 2. febrúar
Mannaskipti 3. febrúar
Samstarfsverkefni 21. febrúar


 

Leonardo bæklingur


Gengistafla 

Til að fá upplýsingar um gengi á evru vs. ÍSK smelltu hér


 




hnappur_nsn.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

 

Evrópusamvinna heimasíða

EVE_logo

 


 


Upplýsingar á vef EACEA 

Samningar milli Landskrifstofu og verkefnisstjóra

Þegar verkefni hlýtur styrk þarf að skila inn ákveðnum upplýsingum áður en hægt er að skrifa undir samninginn og veita styrkinn:

  • Fyrir gerð samnings milli Landskrifstofu og verkefnisstjóra fyrir Leonardo mannaskiptaverkefni sem samþykkt eru á árinu 2010 þurfa verkefnisstjórar að skila inn frumriti af samstarfsyfirlýsingu "letters of intent" frá samstarfsaðilum. 
     
  • Einnig þarf að skila inn bankaupplýsingum. Athugið að um er að ræða reikninga í evrum.
     
  • Þeir sem fengur niðurskurð á sínum umsóknum þurfa að skila endurskoðaðri  fjárhags- og ferðaáætlun.

Muna: "letters of intent", skila inn bankaupplýsingum og endurskoðaðri fjárhags- og ferðaáætlun ef við á.


Undirbúningur verkefna - handbók & samningseyðublöð

Handbók fyrir verkefnsstjóra

Ákveðnum undirbúningi af hendi verkefnisstjóra þarf að vera lokið áður en styrkþegar leggja af stað í fyrirhugaða ferð. Landskrifstofa hefur tekið saman stutta handbók um verkefnastjórnun sem nauðsynlegt er fyrir verkefnisstjóra að kynna sér vel.

Styrkupphæðir eru mismunandi eftir löndum og nauðsynlegt að vera klár á þeim styrkupphæðum sem veittar eru fyrir hverja heimsókn.

 Samningar milli sendanda, móttakenda og styrkþega eru hluti af undirbúningsvinnu verkefna og vert er að leggja áherslu á að þessir samningar séu gerðir áður en lagt er af stað í ferð.  Ef vandað er til gerðar þessara samninga eru þeir góður stuðningur í undirbúningsferlinu.

Hér fyrir neðan er hægt að sækja samningseyðublöðin. Athugið að annars vegar eru það samningseyðublöð fyrir mannaskiptaverkefni (IVT og PLM) og hins vegar eru það samningseyðublöð fyrir starfsmannaskiptaverkefni (VETPRO).


Samningseyðublöð fyrir mannaskiptaverkefni (IVT og PLM) - 2010 verkefni

Samningur mannaskiptaverkefna er tvíþættur:

Annarsvegar er um að ræða samning sendanda og þátttakanda (Contract for a Leonardo da Vinci training placement)  Athugið að undir þennan samning skrifar sendandi og þátttakandi.

  • Samningur milli sendanda og þátttakanda (IVT & PLM) 2010 Sækja skjal

Hins vegar er til viðbótar þeim samningi, sem viðhengi, samkomulag um þjálfun (training agreement) og gæðaviðmið (quality commitment). Athugið að undir þennan hluta samningsins skrifa allir þrír aðilar verkefnisins, þ.e. sendandi, móttakandi og þátttakandi.  Gæðaviðmiðin eru áhersluatriði sem verkefnastjórum ber að reyna að uppfylla við framkvæmd verkefnisins.

  • Samkomulag um þjálfunina (IVT & PLM) 2009 (.doc 125 K) Sækja skjal

Muna: Samning milli sendanda og þátttakanda og Samkomulag um þjálfunina.


Samningseyðublöð fyrir starfsmannaskiptaverkefni (VETPRO) - 2010 verkefni

Samningur starfsmannaskipta verkefnanna er tvíþættur:

Annarsvegar er um að ræða samning sendanda og þátttakanda (Contract for a Leonardo da Vinci mobility - VETPRO)   Athugið að undir þennan samning skrifa sendandi og þátttakandi.

Hins vegar er til viðbótar þeim samningi, sem viðhengi, dagskrá (workprogramme VETPRO)   Athugið að undir þennan hluta samningsins skrifa allir þrír aðilar verkefnisins, þ.e. sendandi, móttakandi og þátttakandi. 

Gæðaviðmið eru fylgigagn með dagskránni og áhersluatriði sem verkefnisstjóra ber reyna að uppfylla við framkvæmd verkefnisins. 

Muna: Samning milli sendanda og þátttakanda, dagskrá og gæðaviðmið.


Skýrslueyðublöð verkefna ársins 2010

Verkefnisstjóri ber ábyrgð á skýrsluskilum vegna sinna verkefna.  Umsýslukerfi Leonardó mannaskiptaverkefna heitir Leopass og er að finna leiðbeiningar um það í kaflanum um Leopass sem er hér á síðunni. Úr Leopass kerfinu eru keyrðar út fjárhagsupplýsingar verkefnanna sem síðan eru hluti þeirra skýrslna sem verkefnisstjórar skila til Landsskrifstofu.

Milliskýrslur:  Mögulegt er að óska eftir 30% viðbótargreiðslu þegar búið er að nota meira en 70% af styrkupphæðinni.  Milliskýrslu skal skilað í þeim tilfellum og virka þær sem beiðni um þessa viðbótargreiðslu.  Fjárhagshluti milliskýrslu er gerður í Leopass. Vinsamlegast smellið hér til að sækja efnislegan hluta milliskýrslu (word skjal)

Lokaskýrslu verkefnanna skal skila í síðasta lagi tveimur mánuðum eftir að gildistíma verkefnisins líkur.  Lokagreiðsla er ekki gerð fyrr en lokaskýrslu hefur verið skilað og hún samþykkt af Landskrifstofu. Vinsamlegast smellið hér til að sækja form fyrir efnislegan hluta lokaskýrslu.  Athugið að þetta skjal er einnig hægt að nálgast inn í Leopass og er þá búið að fylla inn grunnupplýsingar verkefnisins.

Lokaskýrsla samanstendur af 4 þáttum:

  1. Efnislegum hluta  þar sem skýrt er frá framkvæmd verkefnisins, helstu niðurstöðum o.fl.  (Athugið að kafli IV Participant data og kafli V Financial tables eru  keyrðir út úr Leopass kerfinu)
     
  2. Fjárhagshluti lokaskýrslunnar er gerður og keyrður út úr Leopass kerfinu.  
     
    Nauðsynleg fylgigögn:

    a ) Gögn sem staðfesta dvalartíma og þá reynslu sem þátttakandinn hefur öðlast. Um er að ræða:
    EUROPASS starfsmenntavegabréf.  Athugið að vanda vel gæði skjalsins, að dagssetningar séu réttar,  skjalið undirritað og stimplað af þeim sem að skjalinu koma. Upplýsingar um Europass starfsmenntavegabréfið eru á http://www.europass.is/.  Þar eru einnig upplýsingar um það hvernig má nálgast númer fyrir Europass skjöl en sérstök númer eru gefin upp fyrir hvern einstakling.
    STAÐFESTINGU á dvöl (certificate) þar sem fram kemur dvalartíminn og upplýsingar um dvölina.  Athugið að staðfestingin þarf að vera undirrituð af forsvarsmanni móttökustofnunar.
    BROTTFARARSPJÖLDUM(bording pass) eiga þátttakendur að halda til haga og skila til verkefnisstjóra.
     
  3. Afrit af undirrituðum samningi milli sendanda og  þáttakanda sem og afrit af undirritaðri dagská eða þjálfunarprógrammi - sjá samningsformin hér fyrir ofan í kafla um undirbúning verkefna. Þessir samningar eru gerðir fyrir alla styrkþega.
     
  4. Einstaklingsskýrslur styrkþega eru einnig nauðsynleg fylgigögn með lokaskýrslu.  Styrkþegarnir gera sínar skýrslur í Leopass kerfinu eftir að verkefnisstjórar hafa sent þeim lykilorð að kerfinu en einnig skulu styrkþegar prenta út skýrslurnar og undirrita. Nánari upplýsingar er að finna í umfjöllun um leopass kerfið.

Skýrslukóðar

Við gerð þeirra skýrslna sem hér um ræðir eru notaðir ýmsar skammstafanir og kóðar.  Vinsamlegast smellið hér til að sækja skjal yfir alla þá kóða sem notaðir eru.