Niðurstöður árlegrar úthlutunar til samstarfsverkefna liggur fyrir í júlímánuði og geta verkefnin hafist 1. ágúst svo framarlega sem samningur hafi verið gerður. Eftir að samningur hefur verið undirritaður er greidd fyrirframgreiðsla, 80% af styrkupphæðinni.
Á miðju tímabili skal skila milliskýrslu þar sem skýrt er frá framgangi verkefnisins og lokaskýrslu skal skila tveimur mánuðum eftir að gildistíma verkefnisins lýkur.
EST - European Shared Treasure er gagnabanki samstarfsverkefna sem allir þátttakendur í samstarfsverkefnum (coordinator and partners) þurfa að skrá í upplýsingum um verkefnin
Hér fyrir neðan eru skýrsluform milliskýrslna vegna verkefna áranna 2008 og 2009
Milliskýrslu skal skila til Landskrifstofu Menntaáætlunar, Leonardó áætlunarinnnar á miðju verkefnatímabilinu eða fyrir 30. september.
Form fyrir milliskýrslu 2008 verkefna PROGRESS REPORT (.doc, 140 kb)
Form fyrir milliskýrslu 2009 verkefna PROGRESS REPORT
Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar vegna lokaskýrslna
Gildistími Leonardo samstarfsverkefna ársins 2008 rann út í lok mai 2010. Lokaskýrslu skal skila tveimur mánuðum eftir að gildistíma verkefnisins lýkur eða í síðasta lagi 30. September 2010.
Lokaskýrslan er rafrænt skýrslueyðublað, svokallað eForm. Undir lok verkefnatímans fær hver þátttakandi sitt form með tölvupósti og skal hann fylla út það form, prenta út, undirrita og senda til Landskrifstofu Menntáætlunar ESB, Dunhaga 5, 107 Reykjavík.
Eftir að lokaskýslan hefur verið samþykkt má greiða lokagreiðslu verkefnisins að því tilskildu að upplýsingar hafið verið fylltar inn í EST gagnagrunn samstarfsverkefna. Hver þáttttakandi fær send aðgangsorð með tölvupósti til að geta sett inn upplýsingarnar. EST gagnagrunnurinn er aðeins opin maí – september ár hvert.
Leiðbeiningar fyrir rafræn skýrslueyðublöð - eForm
Rafræna skýrslueyðublaðið er pdf skjal sem hægt er að opna og vinna með í Adobe Reader í útgáfu 9 eða nýrri. Adobe Reader er ókeypis forrit og er hægt að sækja það á www.adobe.com
- Landskrifstofa sendir hverjum verkefnisstjóra sitt eyðublað. Vistið skjalið í tölvunni ykkar (velja Save). Það þarf ekki að vera nettengdur til að vinna með umsóknina í tölvunni.
- Til að athuga hvort eyðublaðið sé rétt útfyllt, þarf að smella á Validate-hnappinn. Ef ekki hefur verið fyllt rétt út, kemur upp ábending um það.
- Ekki er hægt að senda inn umsóknina fyrr en hægt er að "Validera" allt eyðublaðið. Þegar því er lokið skal smella á Submit Online - hnappinn. Þá er rafræna umsóknin send (tölvan þarf að vera nettengd). Ef sendingin heppnast opnast staðfesting á því ásamt frekari leiðbeiningum. Prentið þessa staðfestingu út og sendið ásamt skýrslunni, útprentaðri og undirritaðri til Landskrifstofu
- Ef ykkur vantar frekari aðstoð getið þið haft samband við starfsfólk Leonardo áætlunarinnar, Ástu Vigdísi í síma 525 4151 eða með tölvupósti: astavig(hjá)hi.is eða Margréti í síma 525-4291 eða með tölvupósti:marjoh(hjá)hi.is
EST, European Shared Treasure gagnabankinn
er sérstakur gagnabanki fyrir samstarfsverkefni. Honum er ætlað að auka sýnileika verkefna og bæta aðgengi að upplýsingum um afurðir verkefna. Samkvæmt samningi skulu allir þátttakendur í samstarfsverkefnum (coordinator and partners) skila upplýsingum um verkefnin í EST gagnagrunninn.
Það er munur á hlutverki og aðgangi þeirra sem eru verkefnisstjórar (coordinators) og þátttakenda (partners). Í meginatriðum virkar gagnagrunnurinn þannig að búið er að setja lýsingu á verkefninu inn í kerfið og var hún tekin beint úr umsókninni. Þessi lýsing er á ensku og lokuð öllum nema verkefnisstjórum sem geta lagfært hana ef þörf kerfur. Allir þátttakendur eru beðnir að þýða þessa lýsingu á sitt eigið tungumál. Að auki eru allir þátttakendur beðnir að setja inn upplýsingar um niðurstöður (results) verkefnisins, bæði á íslensku og ensku.
Allir þátttakendur fá senda frá okkur slóð að gagnagrunninum og aðgangsorð. Ítarlegur leiðbeiningabæklingur er hér fyrir neðan en hann er nauðsynlegt að hafa við hendina þegar byrjað er að færa upplýsingar inn í gagnagrunninn.
Leiðbeiningarbæklingur EST - sækja skjal
Skýrslukóðar
Við gerð þeirra skýrslna sem hér um ræðir eru notaðir ýmsar skammstafanir og kóðar. Vinsamlegast smellið hér til að sækja skjal yfir þá kóða sem notaðir eru (.doc, 151 kb).







