Rafrænar umsóknir 2010 og handbók
Eyðublöð birtast hér jafnóðum og þegar þau berast. Hér fyrir neðan er hægt að sækja rafræn umsóknareyðublöð fyrir árið 2010. Einnig er þar hægt að sækja handbók (á ensku) um notkun og innfyllingu eyðublaðsins.
Athugið að ekki er nóg að senda umsóknir rafrænt. Þær verður að prenta út, undirrita og senda með fylgigögnum í tvíriti (frumrit og eitt afrit) til Landskrifstofu fyrir lok umsóknarfrests. Póststimpill gildir.
Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB
Comenius
Háskólatorgi
101 Reykjavík
-
Handbók um notkun rafrænna umsóknareyðublaða
(Acrobat PDF 228 K)
-
Rafræn umsókn um samstarfsverkefni
(Acrobat PDF 1173 K)
-
Handbók um notkun rafræna umsóknareyðublaðsins
(Acrobat PDF 228 K)
-
Rafrænt eyðublað fyrir undirbúningsstyrki
(Acrobat PDF 1533 K)
-
Aðstoðarkennsla (einstaklingar) - mat á umsóknum
(Microsoft Word 132 K)
-
Aðstoðarkennsla (einstaklingar) - umsóknareyðublað
(Microsoft Word 570 K)
-
Endurmenntun - mat á umsóknum
(Microsoft Word 311 K)
-
Námsferðir - mat á umsóknum
(Microsoft Word 125 K)
-
Námsferðir - umsóknareyðublað
(Microsoft Word 486 K)
-
Vinnustofur - umsóknareyðublað
(Microsoft Word 351 K)
Rafræn umsóknareyðublöð - eForm
Rafræna umsóknarformið er pdf skjal sem hægt er að opna og vinna með í Adobe Reader í útgáfu 9 eða nýrri. Adobe Reader er ókeypis forrit og er hægt að sækja það á www.adobe.com
Afar mikilvægt er að vista umsóknarformið í tölvunni ykkar, annað hvort á skjáborðið eða í möppu. Fyllið út reitina, í réttri röð. Athugið að fylla þarf út í alla reiti sem bryddaðir eru með rauðri línu. Til að ganga úr skugga um að formið hafi verið fyllt rétt út, smellið þá á Validate-hnappinn. Ef ekki hefur verið fyllt rétt út, kemur upp ábending um það. Ekki er hægt að senda skjal fyrr en hægt er að "Validera" allt formið. Þegar því er lokið og formið telst gilt, skal smella á Submit Online - hnappinn. Þá er rafræna umsóknin send. Ef sendingin heppnast opnast staðfesting á því ásamt frekari leiðbeiningum. Prentið þessa staðfestingu/leiðbeiningar strax út (eða vistið hjá ykkur og prentið síðar).
Ef einhverjar spurningar vakna eða vandamál koma upp varðandi rafræna umsóknareyðublaðið, vinsamlegast hafið samband við Ástu Vigdísi í síma: 5254151 eða með tölvupósti á netfangið: astavig(hjá)hi.is. Ef spurningar vakna varðandi efnishluta umsókna vinsamlegast hafið samband við viðkomandi verkefnisstjóra.
Hér fyrir neðan er hægt að sækja rafræn umsóknareyðublöð fyrir árið 2010. Einnig er hægt að sækja leiðbeiningar um notkun og innfyllingu eyðublaðsins.
Rafræn lokaskýrsla verður birt í byrjun ágúst 2010
Leiðbeiningar við skýrslugerð
Verkefnisstyrkir ná yfir samningstímabilið frá 1.ágúst – 31. júlí í eitt eða tvö ár. Í tveggja ára verkefnum skal eftir fyrsta árið skila framvinduskýrslu (progressreport) fyrir 30. júní. Að samningstímabilinu liðnu skila styrkhafar inn lokaskýrslu og uppgjöri til landsskrifstofu fyrir 30. september. Styrkir miðast við áætlaðan fjölda ferða og þurfa skólar að hafa staðið skil á lágmarksfjölda þeirra. Styrkhafar eru samningsbundnir til að geyma alla reikninga sem tengjast verkefniskostnaði í 5 ár eftir að verkefni lýkur.
Með uppgjöri þarf að senda inn frumrit af flugmiða og öðrum farseðlum/kvittunum sem tengjast ferðakostnaði. Það þarf ekki að framvísa reikningum vegna uppihaldskostnaðar erlendis. Styrkur vegna uppihaldsskostnaðar kennara hjá Landsskrifstofu Menntaáætlunar ESB á Íslandi hefur verið á bilinu 50% – 75% af uppihaldstaxta Evrópusambandsins sbr. töflur aftast í umsókn og hér neðst á síðunni. Ekki er veittur styrkur fyrir uppihaldi nemenda.


