Hverjir geta tekið þátt?
Grundtvig er fyrir alla þá sem starfa við fullorðinsfræðslu. Þar er átt við fullorðna námsmenn, starfsfólk, kennara og þjálfara frá ýmsum samtökum.
Meðal annars:
- Allar stofnanir/fyrirtæki sem sinna fullorðinsfræðslu
- Endurmenntunarstofnanir ýmiss konar
- Háskólar sem vinna að rannsóknum á námsefni og/eða námsefnisgerð fyrir fullorðinsfræðslu.
- Samtök/stofnanir sem þjálfa kennara í fullorðinsfræðslu
- Samtök
- Stéttarfélög
- Bókasöfn
- Söfn
- Sveitarfélög o.fl.
Hverjir eru markhópar Grundtvig?
- Fullorðna sem ekki hafa grunnmenntun og/eða starfskunnáttu
- Fullorðna í dreifbýli og þá sem búa við kröpp kjör
- Fullorðna einstaklinga með sérkennsluþarfir
- Eldri borgarar
- Öryrkjar
- Fólk sem tilheyrir minnihlutahópum
- Jaðarhópar hvers konar td. hvað varðar menningu og tungumál
- Aðra hópa sem alla jafna taka ekki þátt í e.k. fullorðinsfræðslu eða símenntun


