Með Grundtvig, fullorðinsfræðsluþætti, menntaáætlunar ESB er stefnt að því að efla Evrópuvitund í símenntun/endurmenntun með evrópsku samstarfi. Reynt verður að kynna nýjungar, auka gæði menntunar og auðvelda aðgengi fullorðinna að námi.
Hvernig styrkir?
Hvernig styrkir?
Grundtvig Mulilateral projects - Þróun námsefnis og námskeiða. Samstarfsverkefni að minnsta kosti þriggja stofnana á sviði fullorðinsfræðslu. Umsóknir berist til framkvæmdastjórnar ESB. Nánari útlistun á ensku (.pdf, 76 kb)
Grundtvig Learning Partnership - Samstarf að minnsta kosti þriggja Evrópulanda sem felur í sér heimsóknir samstarfsaðila. Áhersla er lögð á miðlun reynslu, verkefni vari í tvö ár. Nánari útlistun á ensku (.pdf, 73 kb)
Grundtvig In-service training - Endurmenntun/þjálfun fullorðinsfræðslukennara í Evrópu. Umsóknir berist til landskrifstofu. Grundtvig styrkir að jafnaði ferðir og námskeiðs- eða ráðstefnugjöld allt að 6 vikur. Einungis 3 umsóknarfrestir á ári, 15.jan, 30. apríl, 15.sept. Nánari útlistun á ensku (.pdf, 76 kb)
Grundtvig visits and exchange - Námsheimsóknir frá einum degi til 12 vikna. minnst mánaðar umsóknarfyrirvari. Nánari útlistun á ensku (.pdf, 74 kb)
Grundtvig assistants – hægt að fara til fullorðinsfræðslustofnana í Evrópu og starfa í 3-8 mánuði. Nánari útlistun á ensku (.pdf, 68 kb)
Grundtvig net. Samstarf að minnsta kosti sex landa. Vettvangur fyrir hugmyndir um mikilvægi fullorðinsfræðslu og dreifingu á niðurstöðum verkefna. Umsóknir berist til framkvæmdastjórnar ESB. Nánari útlistun á ensku (.pdf, 81 kb)
Grundtvig vinnustofa – námskeið haldin fyrir nemendur í fullorðinsfræðslu. Nemendur sækja um styrk beint til námskeiðshaldara, sem fær Grundtvig styrk til að standa fyrir námskeiði. Nánari útlistun á ensku (.pdf, 73 kb)
Grundtivg Sendior volunteering – fullorðinsfræsðlustofnanir skiptast á 2-6 sjálfsboðaliðum 50 ára og eldri í minnst 3 vikur. Nánari útlistun á ensku (.pdf, 68 kb)
Undirbúningsstyrkir eru veittir til fundaferða til að koma á verkefnum með samstarfsaðilum eða til þess að sækja tengslaráðstefnur í Evrópu. Umsóknir berist til landskrifstofu. Nánari útlistun á ensku (.pdf, 60 kb)
Grundtvig er aðallega ætlað að ná til fullorðins fólks með litla menntun. Þeir hópar sem njóta forgangs eru:
Félagslega og fjárhagslega vanbúnir
Fullorðnir án grunnmenntunar
Eldri borgarar
Öryrkjar
Minnihlutahópar hvað varðar menningu og tungumál
Jaðarhópar hvers konar
Fyrir utan allar menntastofnir geta alls kyns stofnanir eða samtök sótt styrki til Grundtvig t.d.:
Bókasöfn, söfn, samtök, stofnanir o.fl.
Aðal markmið
Að koma á samvinnu milli fullorðinsfræðslustofnana
Styðja við menntun þeirra sem starfa í fullorðinsfræðslu
Styðja við þróun á kennsluefni sem hægt er að nýta í fullorðinsfræðslu
Lærum allt lífið
Dæmi um verkefni 2009
1. InterCultural Iceland vinnur að verkefninu Creative in Difference, Creative Approaches for diversity trainings er núna þátttakandi í Evrópu verkefni styrktu af Grundtvig 2 áætluninni. Verkefnið snýst um hvernig megi örva fjölmenningarlega– og frumkvöðlafærni i kennslu fyrir fullorðna. Verkefnið leggur sérstaka áherslu á kennslu svokallaðra jaðarhópa í samfélaginu. Þátttakendur safna margvíslegu efni og aðferðum sem síðan verður kynnt hér á heimasíðunni. Þátttökulönd eru Ísland, Þýskaland, Ítalía og Spánn. Vefsíða: http://www.ici.is Auk þess býður ICI upp á endurmenntunarnámskeið fyrir kennara og starfsfólk fullorðinsfræðslu á vegum Grundtvig 3 áætlunarinnar.
2. Sjálfsbjörg vinnur að verkefninu Families partnerships for inclusive education með Frakklandi UK, Rúmeníu, Ítalíu. Markmið verkefnis er að aðstoða foreldra fatlaðra barna þegar kemur að skólagöngu þeirra og áframhaldandi menntunarmöguleikar.
Aðgangur fatlaðra að skólakerfinu. Stefnt er að því að þróa námskeið fyrir foreldra og aðstandendur.
3. Einnig vinnur Sjálfsbjörg að verkefninu Disabled people partnerships for inclusive education en þar er markmiðið að vinna með fötluðum einstaklingum og að þeir hafi möguleika á að stýra vali sínu til menntunar.
4. Félag Sagnaþula vinnur að verkefninu European storytelling through art með Bretum, Pólverjum og Svíum. Markmiðið er að skiptast á sögum, handverki og reynslu á eftirfarandi sviðum:
Gildi felast í heimabyggð, félagsleg aðlögun jaðarhópa
Vinna með eldri borgurum – vinna að fræðslustarfi fyrir eldra fólk
Vinna með fötluðum - sögur notaðir sem fræðsluefni
Vinnustofa sagnaþula og félagslegu hlutverki þeirra við borgarmenningu
• Sjálfboðaverkefni Umhverfisstofnunar byggir á samstarfi við Breta og skiptast stofnanir á sjálfboðaliðum sem fara og vinna í þjóðgörðum í a.m.k. 3 vikur.
Vinnustofan sem ICI bauð upp á bar nafnið „Intercultural competence in a new environment“
Þátttakendur voru þrettán talsins frá eftirfarandi löndum: Pólland 2, Lettland 2, Ítalía 2, Spánn 2, Þýskaland 2 (innflytjendur frá Tyrklandi og Póllandi), Finnland 1, Búlgaría 1 og einn frá Íslandi.
Við val á þátttakendum var sérstaklega haft til hliðsjónar að fjölbreytileikinn væri sem mestur innan hópsins hvað varðar aldur, menntun, starfsvettvang og búsetu. Þannig var yngsti þátttakandinn 19 ára og sá elsti 67 ára, störf þátttakenda voru einnig mjög fjölbreytt og má nefna að meðal þátttakenda var íslenskur bóndi, ítalskur fangelsisskólastjóri, túlkur og þýðandi, nemi, frumkvöðull á sviði tölvumála, starfsmaður í miðstöð innflytjenda og yfirmaður fullorðinsfræðslu svo eitthvað sé nefnt. Það sem allir þátttakendur þurftu að eiga sameiginlegt var að þeir hefðu áhuga á að bæta fjölmenningarlega færni sína og að þeir væru nemendur í einhverskonar enskunámi. Hvað ensku kunnáttu varðar var þar einnig horft til fjölbreytileikans þannig að bæði byrjendur í ensku og lengra komnir voru valdir til þátttöku. Þar sem fjölmenningarleg hæfni var eitt af markmiðum vinnustofunnar var þessi fjölbreytileiki afar mikilvægur og ólík enskukunnátta var mikilvæg til að nemendur lærðu hver af öðrum en ekki bara af leiðbeinendum.
Umsjónarmenn vinnustofunnar voru tveir en annar sá svo til eingöngu um skipulag varðandi fjármálahliðina en hinn um kennsluna.
Vinnustofan gekk afar vel og sýndi bæði matið sem fram fór eftir vinnustofuna afar jákvæð viðbrögð þátttakenda en einnig var munurinn í sjálfstrausti, samsktipum og samvinnu svo augljós að þessum fimm dögum liðnum að enginn vafi var á árangrinum. Síðan vinnustofunni lauk hafa þátttakendur allir skráð sig inn á Facebook og halda sambandi þar og skiptast t.d. á myndum og smáfréttum og halda þannig áfram að þjálfa enskuna.
Vinnan var tekin alvarlega og dagskránni haldið til streitu. Flesta daga var unnið frá 9 – 16 en þó var stunum byrjað klukkan átta þannig að hægt væri að hætta fyrr til að fara í skoðanaferðir. M.a. var farið í ferð á tvo bóndabæi þar sem gengið var um fjós og fjárhús. Veðrið var alls ekki upp á sitt besta með ísakulda og roki en eins og einn þátttakandinn orðaði það “the weather is no problem – its kind of an extreme experience. I have been to all kind of places but never to a place where I literary couldn’t stand on my feet because of the wind and had to sit down.”


