Umsóknarfrestur vegna Comenius skólasamstarfsverkefna er 21. febrúar 2012. Jafnframt má finna upplýsingar um umsóknarfresti hér. Niðurstaða styrkveitinga í skólaverkefnum liggur fyrir 1. vikuna í júlí.
Samstarfsverkefni milli að minnsta kosti þriggja skóla á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi frá þremur þátttökulöndum. Í hverju verkefni verður að minnsta kosti einn þátttökuskóli að koma frá landi sem er aðili að Evrópusambandinu. Verkefni standa yfir í tvö ár.
Leit að samstarfsaðilum
Finna má samstarfsaðila með margvíslegum hætti. Nýta má óformlegar leiðir t.a.m. í gegnum kunningsskap eða fara formlegri leiðir með því að nýta þar til gerðar síður. Leitarvefur eTwinning er dæmi um slíka síðu sem notuð er í auknu mæli. Notkun hennar er markviss leið til að finna samstarfsaðila. Önnur leitarsíða sem reynst hefur gagnleg er síða British Council - Schools online. Jafnframt getur heimsókn á tengslaráðstefnur reynst góður vettvangur til að komast í samband við hugsanlega samstarfsaðila. Yfirlit um dagskrá tengslaráðstefna má finna undir >skólasamstarf > Undirbúningsheimsóknir og tengslaráðstefnur. Þá berast landsskrifstofu beiðnir reglulega frá evrópskum skólum sem hægt er að fá sendar.
Hér má fara inn á leitarvef eTwinning. Til að unnt sé að nýta leitarvélina þarf að skrá sig sem meðlim.
Hér má fara inn á breska leitarvefinn British Council - Schools online.
Markmið
Að styrkja samstarf milli evrópskra skóla með því að koma á sambandi milli nemenda, styrkja kennaraskipti og auka þekkingu á menningu og tungu annarra þjóða. Samstarfsverkefni geta til dæmis verið á sviði lista, vísinda, umhverfismála, sögu, landafræði og fleiri.
Styrkir
Styrkir eru veittir til fundaferða kennara og nemenda, kennaraskipta, heimsókna skólastjóra og ferða á ráðstefnur á vegum Comenius Net.
Verkefni standa yfir í 2 ár og er sótt um styrk fyrir allt tímabilið.
Upphæðir styrkja miðast við fjölda ferða:
- Minnst 4 ferðir kennara á tveimur árum - 7.000 €
- Minnst 8 ferðir kennara og nemenda á tveimur árum - 12.000 €
- Minnst 12 ferðir kennara og nemenda á tveimur árum -18.000€
- Minnst 24 ferðir kennara og am.k. 20 nemendur á tveimur árum - 24.000€
Athugið:
Tveir íslenskir skólar geta tekið þátt í sama samstarfsverkefni. Einungis skólar með fleiri en 500 nemendur geta sótt um tvö verkefni að því gefnu að markhópar og svið séu mismunandi.
Spurningar og svör
Algengar spurningar um Comenius verkefni (.doc, 87 kb)
Fyrirlestur frá námskeiði í gerð umsókna 5. febrúar 2010 (.pdf, 266 kb)
Yfirlit yfir Comenius skólaverkefni 2007
Comenius Compendium (.doc, 95 kb)
Yfirlit yfir Comenius skólaverkefni 2008



