Upplýsingar á vef ESB

 

Landskrifstofur Menntaáætlunar ESB

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

hnappur_nsn.jpg
Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins


 

Erasmus Mundus: Spænskudeild Háskóla Íslands í samstarfi við evrópska háskóla 09.11.2009

Erasmus Mundus menntaáætluninni var hleypt af stokkunum á vegum Evrópusambandsins árið 2004. Markmið hennar er að styrkja og stuðla að frekari uppbyggingu framhaldsnáms á meistara- og doktorstigi við evrópska háskóla. Fyrr á árinu var leitað til spænskudeildar Háskóla Íslands um þátttöku í verkefninu MULTIELE: „Multilingalism: Master’s degree in Learning and Teaching of Spanish in Multilingual and International Contexts“ (www.multiele.org) sem Deusto-háskólinn í Bilbao á Spáni veitir forystu. Brugðist var jákvætt við fyrirspurninni og skemmst er frá því að segja að verkefnið hlaut starfstyrk frá sambandinu til næstu fjögurra ára. Háskóli Íslands er því einn sjö evrópskra háskóla sem koma að þessari nýju námsleið á meistarastigi. Aðrir háskólar sem tengjast henni eru Háskólinn í Barcelona, Pompeu-Fabra háskólinn í Barcelona, Stokkhólms-háskóli, Freie-Universität í Berlin og Groningen-háskóli í Hollandi. Í nánu samstarfi við evrópsku háskólana eru Maryland-háskóli í Bandaríkjunum, Campinas-háskóli í Brasilíu, Jawajarlal Nehru-háskólinn á Indlandi, Málvísinda-háskóli Moskvu í Rússlandi og Osaka-háskóli í Japan.

Það er mikil viðurkenning fyrir spænskudeildina að vera valin til samstarfs og ekki hvað síst vegna þess að þetta er fyrsta verkefnið sem Háskóli Íslands tekur fullan þátt í innan Erasmus Mundus áætlunarinnar.

Til gamans má geta þess að Háskóli Íslands er einn 4000 háskóla sem skráðir eru starfandi innan Evrópu um þessar mundir. Á þeirra vettvangi starfar um ein og hálf milljón manna og rúmlega l7 milljónir nemenda sækja þangað menntun á ári hverju. Áhugasömum nemendum er bent á að kynna sér hinar fjölmörgu mismunandi námsleiðir sem í boði eru og um leið möguleika á styrkjum til frekara náms. Upplýsingar er að finna hjá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins og á: http://eacea.ec.europa.eu/erasmus_mundus/index_en.php
 

Til baka...