Upplýsingar á vef ESB

 

Landskrifstofur Menntaáætlunar ESB

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

hnappur_nsn.jpg
Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins


 

Schoolovision í fyrsta sæti!
Eftir gim |
12.10.2009

Verkefnið Schoolovision, sem Flataskóli tók þátt í, hreppti fyrsta sæti í flokki nemenda 15 ára og yngri í Global Junior Challenge.

Kobrún Svala Hjaltadóttir, sem stýrði verkefninu hjá Flataskóla bloggar á eTwinning-blogginu:

"Verkefnið Schoolovision sem Flataskóli í Garðabæ tók þátt í síðasta skólaár hlaut fyrsta sæti í Global Junior Challenge keppninni á Ítalíu fyrir 15 ára og yngri. Michael sem stjórnaði verkefninu frá Skotlandi tók á móti verðlaununum í sínu fínasta pússi (sjá mynd). Við erum mjög stolt af því hve verkefnið hefur skilað sér vel til margra og gefið margar afurðir af sér í hverju landi fyrir sig. 

Í Flataskóla hefur nú þegar verið ákveðið að halda aftur svokallað Flatóvision á vorönn til að undirbúa þátttöku í Schoolovision 2010 og við hlökkum mikið til að takast á við verkefnið aftur með reynsluna í farteskinu.

Kolbrún Svala Hjaltadóttir, kennsluráðgjafi í Flataskóla"

Til baka...