Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til næstu þriggja ára í menntaáætlun Evrópusambandsins (Lifelong Learning Programme - LLP). Um er að ræða alla flokka styrkja úr öllum undiráætlununum – Comenius, Leonardo, Erasmus, Grundtvig, þveráætlunum, þar með töldum námsheimsóknum fyrir stjórnendur og stefnumótendur í menntamálum (áður Arion og Cedefop) og Jean Monet. Auglýsingin er mjög ítarleg þar sem tilgreind eru forgangsatriði næstu þriggja ára almennt og fyrir hverja undiráætlun. Þá vísar auglýsingin einnig í leiðbeiningar fyrir umsækjendur.
Á heimasíðu Evrópusambandsins er auglýsingin í heild sinni „General Call for Proposals 2010“ og varðar hún eins og áður segir alla menntaáætlunina.




