1,2, Buckle my shoe í úrslitum Global Junior Challenge 2009
Eftir gim | 15.09.2009
Eftir gim | 15.09.2009
1,2, Buckle my shoe er komið í úrslit Global Junior Challenge 2009 en sjálf úrslitin verða kynnt með viðhöfn í Róm í byrjun október. Verkefnið hefur unnið til fjölda verðlauna, þeirra á meðal Evrópuverðlaun eTwinning og Landskeppni eTwinning fyrir skólaárið 2008-2009, að ógleymdum viðurkenningum í heimalöndum þátttakenda.
Íslenski skólinn í verkefninu er Furugrund í Kópavogi þar sem Fjóla Þorvaldsdóttir hefur sinnt því af stakri prýði.
Landskrifstofan óskar Furugrund og samstarfsskólum til hamingu!




